Verðlækkun á 30 ml salti - 6 fyrir 5 af öllum vökvum í sömu stærð (taktu fram hvaða frívökva þú vilt fá í athugasemdum í körfunni) Gildir ekki af tilboðsvökvum. Frí sending á pósthús eða póstbox ef pantað er fyrir 10000kr eða meira einnig fyrir dropp afhendingarstaði.
Verðlækkun á 30 ml salti - 6 fyrir 5 af öllum vökvum í sömu stærð (taktu fram hvaða frívökva þú vilt fá í athugasemdum í körfunni) Gildir ekki af tilboðsvökvum. Frí sending á pósthús eða póstbox ef pantað er fyrir 10000kr eða meira einnig fyrir dropp afhendingarstaði.

Skilmálar

Við hjá Gryfjunni leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum okkar persónulega og góða þjónustu. Hér koma upplýsingar um þá skilmála sem verslunin gefur sér. Ef þú hefur einhverjar frekari spurningar þá svörum við fyrirspurnum á [email protected].

Það er 18 ára aldurstakmark hjá okkur. Ef viðskiptavinur er uppvís að því að segja ósatt til um aldur verður greiðsla bakfærð gegn samþykki foreldris eða forráðamanns.

Pantanir sem berast fyrir kl. 14 á virkum dögum eru sendar samdægurs, annars næsta virka dag.

Vilji viðskiptavinur hætta við pöntun eftir að hafa staðfest pöntun í vefverslun er best að hringja í okkur. Við getum þá bakfært pöntunina og endurgreitt hana að fullu. Við sendum vörur frá okkur daglega og því þarf slík tilkynning að koma innan 6 klst. eftir pöntun eða fyrir 13 þann dag sem pöntunin fer í póst. Ef meira en 6 klst. eru liðnar frá pöntun eða klukkan orðin 13 og pöntun farin í póst greiðir viðskiptavinur sendingarkostnaðinn kjósi hann að hætta við pöntun. Ekki verður endurgreitt fyrr en varan hefur skilað sér til okkar.

Ef viðskiptavinur vill skila eða skipta vöru þarf að koma henni til okkar innan 14 daga frá afhendingu. Viðskiptavinur á rétt á að skipta í aðra vöru eða inneignarnótu ef vörum er skilað innan 14 daga eftir afhendingu. Viðskiptavinur getur farið fram á endurgreiðslu á vörum sem er skilað innan 14 daga í óopnuðum umbúðum, en greiðir sjálfur sendingarkostnaðinn ef viðkomandi sendir vöruna til baka. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vörum sem er skilað.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Verði varan fyrir tjóni í flutningum biðjum við viðskiptavini um að hafa samband við okkur og við leysum málið saman. Eftir að viðskiptavinur hefur veitt vörunni viðtöku er hún alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.

Allar sendingar eru skráðar og fá sendinganúmer frá Íslandspósti. Enginn sendingakostnaður er á pöntunum yfir 8.000,- kr. Sendingagjald greiðist póstinum við móttöku sendingar. Sjá verðskrá Íslandspósts fyrir pantanir undir 8.000,- kr.

Villur, gallar og önnur ávöxtun vara:

  1. Tönkum eru einungis hægt að skila/skipta hafi innsigli ekki verið rofið. 
    Vegna hreinlætis ástæðna getum við ekki tekið á móti notuðum/opnuðum tönkum. Einnig er eðli þeirra þannig að ómögulegt fyrir okkur að vita hvað rafhlöðu, afl eða vökva viðskiptavinur hefur notað. .
  2. Sé vara gölluð, afhent gölluð eða galli komi í ljós við fyrstu notkun, fæst henni skipt fyrir sömu vöru nema hún sé ekki lengur til á lager. Þá er sambærileg vara afhent í staðin. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að athuga hvort vara virki eins og hún á að gera frá því að hún er keypt.
  3. Ef viðskiptavinur telur vöru vera gallaða en hún reynist vera í lagi við prófun okkar, sendum við vöruna til baka á kostnað viðskiptavinarins.
  4. Virki vara frá okkur ekki með annari vöru sem er keypt annars staðar telst það ekki vera galli á okkar vöru.
  5. Við getum aðeins ábyrgst að vörurnar okkar virki með öðrum vörum sem við seljum. Rafrettumarkaðurinn er gríðarlega stór og í stöðugri þróun. Í sumum tilvikum mun ein vara ekki virka með annarri, þetta er sjaldgæft en getur komið fyrir.
  6. Ódýrari rafhlöður geta verið útkeyrðar eftir 90 daga séu þær í stöðugri notkun. Hleðslurafhlöður hafa takmarkaðan endingartíma og rýrna með tímanum. Eigi viðskiptavinur vöru frá okkur sem virkar ekki lengur eðlilega, getur hann sent hana til okkar og við metum hvort um sé að ræða galla eða eðlilega rýrnun. Við ábyrgjumst ekki brotin gler eða vörur sem gefa til kynna að notandi hafi valdið vörunni tjóni eftir að viðskiptavinur hefur veitt vörunni viðtöku.
  7. Þegar vöru er skilað póstleiðis verður viðskiptavinur að senda hana til okkar vel innpakkaðri ásamt nafni og öðrum viðeigandi upplýsingum. Viðskiptavinur ber ábyrgð á vörunni þar til henni hefur verið veitt viðtöku. Viðskiptavinur verður að útvega eintak af upprunalegu kvittuninni, tilgreina hvert vandamálið sé og hvað hann vill að við gerum. Við erum ekki ábyrg fyrir "tapaðri" sendingu sem er að koma til okkar.
  8. Viðskiptavinir sem reyna að skila klónum af vörum (vörum sem ekki voru keyptar af okkur og ekki gerðar af framleiðendum sem við styðjum) munu fá vöruna senda aftur til þeirra á eigin kostnað. Þeim viðskiptavinum verður ekki lengur heimilt að versla við okkur í vefverslun og málið meðhöndlað sem vörusvik.

 

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Við fögnum athugasemdum um þessa skilmála. Ef þér finnst við ósanngjörn að einhverju leiti eða ef eitthvað er óskýrt, hafðu þá endilega samband við okkur og við munum finna leið til að gera alla ánægða.

 Vilji viðskiptavinur falla frá kaupum á vörum hjá okkur hefur hann 14 daga til þess. Hægt er að koma með vöruna í búðir okkar og senda okkur tölvupóst. Við viljum benda fólki á eyðublað í Reglugerð 435/2016 sem hægt er að fylla út og senda okkur.

Komi upp ágreiningur um þessa skilmála er viðskiptavinum bent á að leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 21, 105 Reykjavík
www.kvth.is